Fínt veður í dag, skúrir, hæg SA átt og milt, um 9°C. Við fórum í Hafnargerði um stund, Halldór hélt áfram að reita illgresi úr matjurtagarðinum, nú er það krossfífill sem hefur lagt undir sig beðin. Það þýðir ekkert að henda plöntunum út fyrir akurinn, þær ræta sig samstundis aftur í rakanum og halda áfram að blómstra. Því eru plönturnar settar í plastpoka og þeim hent í ruslið.
Ég plantaði í fyrsta hvítlaukskerið, 64 rif í ker nr. 2, við hliðina á villijarðarberjunum. Allt væn rif og falleg, nú eigum við nóg af útsæði fyrir næsta ár. Það var komið mikið illgresi í kerið, ég hreinsaði það allt í burtu og bætti nýrri mold með svolitlu af sveppamassa ofan á þá gömlu. Svo fór ein fata af sandi ofan á moldina. Við strengdum svo akryldúk yfir allt saman, vindurinn á það til að feykja moldinni til. - Þetta er heldur fyrr en undanfarin ár, samkvæmt bókinni á hvítlaukurinn að fá smá tíma að hausti til að ræta sig og ætti því að verða stærri næsta sumar.
Við tókum upp möndlukartöflurnar. Þær litu mjög vel út, það voru um og yfir 10 undir hverju grasi og um helmingur þokkalega stór. Þær voru þvegnar í læknum og standa nú inni til þessis.
No comments:
Post a Comment