Showing posts with label Jörvavíðir - Salix hookeriana. Show all posts
Showing posts with label Jörvavíðir - Salix hookeriana. Show all posts

Monday, August 12, 2013

Mánudagur 12. ágúst 2013

Hlýtt í dag, um og yfir 12°C, sólskin og logn. - Það var ágætt veður alla helgina, en þá vorum við Halldór í veislum, afmæli hjá Áslaugu Birnu og líka hjá Láru og svo var Auður Kuga með boð í Grímsnesinu.
  Í dag hljóp okkur kapp í kinn og við gróðursettum 35 jörvavíði 'Kólga', græðlinga frá því í vor sem Lilja í trjáklúbbnum gaf okkur og eru orðnir ansi öflugir. Við settum þá í röð austan við grindurnar við akurinn og vonumst til þess að með tíð og tíma hverfi grindurnar inn í skógarþykknið. Næst gróðursettum við 5 garðasýrenur, 1 alpareyni, 1 kirtilrifs og 5 birki á svæðið austan og ofan við akurinn og loks 2 jörvavíði 'Katla' vestan við akurinn, þar voru 2 fyrir og fleiri á stykkinu norðvestan við akurinn, þar sem Haraldur plægði fyrst vorið 2008.

Tuesday, July 16, 2013

Þriðjudagur 16. júlí 2013

Yndislegt veður í dag, smáskúrir í morgun en létti til síðdegis og skein jafnvel svolítil sól. Hiti 11°C og logn.
Ég var hjá Sædísi til 16 og í Hafnargerði til kl. 20. Á meðan ég var í vinnunni gróðursetti Halldór 15 viðjur frá því í vor. Þær voru í vatni þangað til sást móta fyrir rótum og fóru þá í fp15 í hreinan skít (frá því í fyrra). Þetta kom svona ljómandi vel út og græðlingarnir voru komnir með góðar rætur. Þetta var gróðursett upp með girðingu, eins og 20 jörvavíðiplöntur sem við gróðursettum þar í gær og eins settum við 20 serbíugreni á svipaðar slóðir og síðast, ofan við gamla leynilundinn minn, þar er vel að merkja sýrenan með eitt blóm og yllir er að mynda ber. Allt að gerast, þrátt fyrir vond veður og miklar rigningar. Villijarðarber bera blóm á mörgum stöðum og líta mjög vel út. Kartöflurnar í kerjunum eru risastórar (þ.e. grösin) og hvítlaukurinn virðist í góðu lagi. Úti á akri er hnúðkálið mun seinna en í fyrra en það gæti vel náð sprettu ef tíð helst sæmileg fram í ágúst, en reyndar er ekki að sjá að það hlýni neitt að ráði á næstunni.
  Í dag tók ég græðlinga af eftirfarandi: selju, baunatré og gullrifsi. Setti þá þétt í hvítar fötur og seljuna í hvítan frauðplastbakka. Ræktunarefnið var mold, skítur og sandur. Vökvaði vel og breiddi plast yfir og setti svo undir lok. Ég pottaði loks 7 reynitré. Þau eru merkt sem rósareynir, en einhvern veginn finnst mér það ekki passa. Þarf að skoða það betur. Nú eru öll reynitrén búin og ég verð að sá í haust.

Wednesday, June 26, 2013

Miðvikudagur 26. júní 2013

Eftir góðviðri í nokkra daga og átakalítið veður hvessti heldur betur í nótt, vindhviður fóru yfir SA 30 m og það var talsverð rigning.
  Annasöm vika að baki. Afmælisveisla Halldórs var haldin laugardaginn 22. júní í blíðskaparveðri, sennilega besti dagurinn það sem af er sumri. Við fengum marga góða gesti í Hafnargerði, Steinar og Anna komu í fyrsta sinn, þá komu Edda og Hinrik og Valdi og fjölskylda. Edda, Hinrik, Steinar og Anna gengu með okkur um stórt svæði og voru mjög áhugasöm um ræktunina. Þau þáðu nokkrar plöntur, ask, geislasóp, villijarðarber og rifs.  Allur gróður sýndi sínar bestu hliðar og þetta var mjög gaman. Matarveisla var svo í Austurholti og stór hluti veislugesta sat allan tímann úti á palli í blíðunni.
Steinar og Edda við hlyninn.

Halldór, Anna, Edda og Hinrik skoða útsýnið, aspirnar í baksýn. 

  Á sunnudaginn byrjuðum við að sauma dúk á beðin. Að lokum fórum við með hann heim og ég kláraði saumaskapinn á stofugólfinu. Dúkurinn komst loksins á mánudaginn 24. júní. Það er um 20 dögum seinna en í fyrra, þá settum við dúk yfir sáningar 27. maí og yfir fyrsta hnúðkálið 4. júní.
  Hnúðkálið í ár er lítið og veiklulegt og svolítið fjólublátt á litinn, það hefur fengið áfall í vorfrostunum. Okkur fannst við geta séð að sumar plöntur væru að fara af stað, nú er ekkert hægt að gera nema bíða og vona.
  Við settum ekki seytlslöngur undir dúkinn, það hefur ekki komið þurr vika og jarðvegurinn er mjög rakur svo ef til vill þarf ekki á því að halda í sumar. Annars verðum við að taka dúkinn af og koma slöngunum fyrir. Trjávöxtur er að fara af stað, það er reyndar mjög mikill maðkur á birkinu, ég vona samt að það sleppi óskaddað og vaxi eitthvað í sumar. Hlynurinn sýnir ótrúlegan vöxt, en hrossakastanían er rétt að byrja að laufgast, og byrjaði ekki að laufgast fyrr en netið var komið á girðinguna norðanmegin, en það var klárað fimmtudaginn 20. júní.
  Rauðrófurnar eru líka stutt komnar og við tókum um það bil 100 bestu og settum í 2 ker og breiddum akryl yfir.
 Í dag tókum við græðlinga af jörvavíði frá því í vor, yrkið 'Katla' og gróðursettum 30 stykki efst í heimagarðinn. Þar gróðursettum við nokkur birki fyrir nokkrum árum ásamt brekkuvíði og elri, þetta er allt að koma til. Líka aspir, við höfum sett niður slatta á hverju ári. Við settum svo 35 af sama jörvavíði norðan við afleggjarann, nálægt hliðinu. Þar settum við jörvavíði sl. 2 ár og sá er að koma til, virðist standa sig vel þarna í sandi á bersvæði.
Jörvavíðirinn, nýgróðursettur.


Felumynd af lerki á sama svæði. 

Sunday, June 2, 2013

Sunnudagur 2. júní 2013

Hlýr og góður dagur, sá fyrsti í nokkurn tíma. Sólskin með köflum og nokkuð hlýtt, veðurstofumælirinn sýnir þó ekki meira en 7-8°C og aðeins hlýrra í gær. Þá voru skúrir og hvasst fram eftir degi. Það rigndi í nótt og í fyrrinótt, úrkoma síðustu 5 daga er 19 mm. Ekki þýðir neitt að eiga við akurinn, hann er svo blautur að maður sekkur í drullu ef maður reynir að komast um. Við verðum að bíða í nokkra daga enn og reyna svo að sá og klára að setja niður kartöflur. Gróðurinn er allur að taka við sér, en er miklu seinna á ferðinni en í fyrra. Rétt komin smá græn slikja á Hafnarskóginn.
Ingibjörg var hjá okkur frá föstudagskvöldi og fór með okkur báða dagana. Við settum gulrætur og radísur í 2 ker og akryldúk yfir. Settum líka akryl yfir ker með jarðarberjum, en þau er afskaplega lengi að koma til í ár. Hjá Sædísi blómstrar öll lengjan sem ég var með í að fjölga um verslunarmannahelgi í fyrra, en hjá okkur eru þau ekki öll komin af stað upp úr moldinni ennþá.
Við gróðursettum 19 aspir á milli læks og girðingar (að landi Gústa) og settum vel af skít með þeim. Við klipptum líka af stóra víðinum sem er inni á vinnusvæðinu og stungum greinunum niður. Þessi víðir var varla sjáanlegur þegar við byrjuðum, en er núna um það bil mannhæðar hár og það þarf að klippa af honum greinar til að  geta gengið um svæðið. Ég fór heim með Ingibjörgu í dag og tók í bakaleiðinni um helminginn af jörvavíði 'Kólgu' sem er á Mógilsá. Tek hinn helminginn næst og fleira sem nú má vel fara út.
Halldór gróðursetti 30 græðlinga af sólberjum sem við tókum snemma í vor og hafa staðið í vatni síðan. Hann valdi úr þá sem eru farnir að sýna rótarhnúða. Hann tók líka nokkra græðlinga af jörvavíði frá svipuðum tíma. Þeir standa í keri með skít frá því í fyrra og eru komnir með vænar rætur. Loðíðir frá sama tíma er rétt að fara af stað.
Við gróðursettum í gær 2 logalauf við hliðina á gullrifsinu við tjaldsvæðið. Það er að verða mjög fallegt og alsett gulum blómknúppum, í fyrra sáust örfá gul blóm. Blátoppurinn á sama stað er líka mjög flottur, hinir eru frekar vesælir ennþá. Þessir tveir fóru ekki að dafna fyrr en ég setti svarta gróðurþekju við þá og kæfði þannig grasið. Nú eru þeir fínir til þess að taka af þeim græðlinga.

Saturday, May 11, 2013

Laugardagur 11. maí 2013

Gott veður í dag, batnaði eftir því sem leið á daginn. Í gær og nótt var úrkoma 23 mm en síðdegis skein sólin og hitinn fór í 12°C. Svolítil SA gola.
Við fengum ekki kassa í Bónus til að prikla í, einnig vantaði lok á næstu karma. Við tókum því daginn í gróðursetningar. Fyrst fóru 9 furur og 5 serbíugreni, hluti NA við akurinn, hinn helmingurinn NV við akurinn, á svæði þar sem áður var komið greni, aspir, furur og seljur.
Næst sóttum við 18 jörvavíði sem voru í beði úti á akri, þeir fóru í stykkið NV við akurinn, þar var gróðursett fyrsta árið, en sprettan hefur ekki verið mikil. Helst er það birkið sem spjarar sig. Við bættum svo við 45 öspum, það eru græðlingar frá því í fyrra sem voru í fp15 bökkum og alveg tilbúnir til að fara út núna.
enduðum svo á því að fara með 33 lítil birki á svæðið neðan við þjóðveginn.

Saturday, March 30, 2013

Laugardagur 30. mars 2013

Blíðuveður, kalt í morgun, 2°C en hlýtt og næstum logn þegar leið á daginn. Sólskin. Við vorum í nokkra klukkutíma í Hafnargerði. Tókum græðlinga af loðvíði 'Ugga' og af jörvavíði 'Kötlu' og settum þá í ker, ríflega 120 af hvorri sort. Setti líka minni græðlinga af loðvíði í frauðplastkassa, 35 stykki.
 Fórum með 10 stærri græðlinga af jörvavíði og fórum með upp að læk og settum í bakkan í suð-austurhorninu. Settum líka niður 15 stóra aspargræðlinga sem ég klippti í limgerðinu við akurinn. Á þessu svæði er talsvert af greni sem sett var niður 2011 og einnig mikið af öspum. Það er ekki mikill vöxtur, en margar plöntur eru lifandi og berjast fyrir lífi sínu í grasinu.

Hvítlaukurinn sem var í pottum inni í skúr er orðin 10-15 cm hár svo við færðum körfurnar út í karm, breiddum akryldúk yfir og svo net til að halda akryldúknum. Svo tókum við græðlinga af stóru viðjunni við Þórðargötu og settum 50 stóra græðlinga í vatnsfötu og ætlum að prófa að bíða eftir þvi að rótarnhnúðar fara að myndast.

Sunday, February 10, 2013

10. febrúar 2013

Daginn er aðeins farið að lengja og á Mógilsá er gróðurinn að taka við sér. Í dag var fyrsti vinnudagurinn þar í langan tíma, en flutningar og kennsla hafa tekið alla orku undanfarna mánuði.
Í dag pottaði ég það sem eftir var af stafafuru sem ég sáði 2011. Plönturnar eru stuttar, en sæmilega breiðar. Reyndar afar misstórar, en allt í allt eru tæplega 50 pottar með efnilegum plöntum.
 Þá pottaði ég græðlinga af blóðrifsi frá því í fyrra, 6 stykki sem voru saman í einum potti og hafa vaxið mjög vel saman. Klippti þá alla vel niður og tók 40 litla græðlinga.
  Pottaði líka 12 birki sem er komið vel af stað í fp40 bakka, moldin kláraðist svo það verð ég að klára næst. Þá setti ég mold í fp35 og merkti jörvavíðir 'Kólga' en ,,, hafa lofað mér því að klippa nokkra græðlinga handa mér.
 Í haust náði ég að potta upp allar sýrenurnar (vulgaris) og þær eru farnar að taka við sér. Slatti af lerki og þin er komið vel af stað, þarf að telja og rifja upp hvaða tegundir þetta eru.