Sunday, December 8, 2013

Sunnudagur 8. desember 2013

Hitinn í dag er 4°C, en undanfarna daga hefur verið mikið frost, fór mest í -17°C. Við fórum í gáminn og hituðum upp, en það gekk hægt að koma hitanum yfir frostmark. Í dag þegar hitinn úti var 3°C var hitinn inni 0°C en eftir tæpa klukkustund með 3 brennara og 2 gastæki að auki í gangi var hitinn kominn í tæpar 4°C. Við gengum aðeins um svæðið á meðan. Nú sást grenitrén vel þegar grasið er fallið, og reyndar aspir og fleira líka, það er mikið að gerast þótt hægt fari.
  Haustið lagðist snemma að og það hefur verið snjór og frost með stuttum hléum frá því í byrjun október og vond veður og stormur þegar þiðnar.

No comments:

Post a Comment