Blíðuveður, kalt í morgun, 2°C en hlýtt og næstum logn þegar leið á daginn. Sólskin. Við vorum í nokkra klukkutíma í Hafnargerði. Tókum græðlinga af loðvíði 'Ugga' og af jörvavíði 'Kötlu' og settum þá í ker, ríflega 120 af hvorri sort. Setti líka minni græðlinga af loðvíði í frauðplastkassa, 35 stykki.
Fórum með 10 stærri græðlinga af jörvavíði og fórum með upp að læk og settum í bakkan í suð-austurhorninu. Settum líka niður 15 stóra aspargræðlinga sem ég klippti í limgerðinu við akurinn. Á þessu svæði er talsvert af greni sem sett var niður 2011 og einnig mikið af öspum. Það er ekki mikill vöxtur, en margar plöntur eru lifandi og berjast fyrir lífi sínu í grasinu.
Hvítlaukurinn sem var í pottum inni í skúr er orðin 10-15 cm hár svo við færðum körfurnar út í karm, breiddum akryldúk yfir og svo net til að halda akryldúknum. Svo tókum við græðlinga af stóru viðjunni við Þórðargötu og settum 50 stóra græðlinga í vatnsfötu og ætlum að prófa að bíða eftir þvi að rótarnhnúðar fara að myndast.
No comments:
Post a Comment