Frábært veður, sólskin, NA8 og 8°C. Það var þó alls ekki hvasst í Hafnargerði og mjög hlýtt. Enn er samt talsvert frost í jörðu.
Við klipptum græðlinga af alaskavíði við Þórðargötu og settum þá niður í bakkann með öspunum. Þetta voru 120 stórir græðlingar og 20 minni sem fóru í flag ofan við lækinn.
Þá klippti ég flesta runnana í ruðningnum, nú eru þeir loksins farnir að vaxa. Stærsta birkið og reynirinn eru jafnháir mér. Klippti líka nokkra runna í skjólbeltinu við akurinn, ekki nærri búin. Þar er líka mikið græðlingaefni af öspum sem er upplagt að klippa núna.
No comments:
Post a Comment