Í nótt rigndi heldur betur, úrkomumælirinn okkar sýndi 27 mm frá því í gær. Akurinn er aftur kominn á flot, einkum efsti og neðsti hlutinn. Ástandið er skást á miðjusvæðinu þar sem ekki verður betur séð en hnúðkálið sé að vaxa undir dúknum.
Í dag fórum við í að losa bakkana með afgangs hnúðkáli og rauðrófum, en fyrst settum við í tvö ker, rauðrófur í annað og hnúðkál í hitt, 50-60 plöntur í hvort ker og akryldúk yfir. Nú verðum við að binda vonir við þessa ræktun. Ég prófaði meira að segja að gefa þessum plöntum svolítið blákorn og Halldór vökvaði með bórlausn. Í hinum kerjunum eru kartöflur að sprengja dúkinn af sér, radísur eru ljúffengar, hnúðkál farið að mynda hausa og rauðrófur eru aðeins að taka við sér.
Næsta verk var að moka moltu milli kerja, það er hálffullt ker með moltu sem er nærri því tilbúin. Veltum því og ætlum að endurtaka það fyrir haustið. Hin kerin eru styttra komin. Afgangs moldin úr matjurtaræktuninni verður notuð á trjáplöntur, en ég keypti einn bakka af sitkagreni af Sædísi og ætla að potta það í stærri potta.
Ég færði í karm potta sem biðu í ruðningi eftir plássi og sá að nú er vöxtur loksins að hefjast. Mjög fallegir græðlingar frá því í fyrra af rauðtoppi (úr Dalseli) og alparifsi (af lóð MB). Villijarðarberin líta vel út, miklu betur en bæði þau bleiku og hvítu, sem eru samt farin að sýna blóm núna. Þá var þarna fallegur silfurreynir frá Eddu, 3 plöntur og nokkrar venjulegar reyniplöntur frá henni og skógarfura sem ég pottaði í fyrra, þær mega vel vera lengur í pottunum. Þær eru háar en ekki mjög sterklegar, en við gróðursettum tvær úr þessu holli í gær.
No comments:
Post a Comment