Sunday, July 7, 2013

Sunnudagur 7. júlí 2013

Í dag var sólskin fyrri hluta dagsins, en nokkur vindur. Síðdegis fór að rigna. Hiti var um 10°C. Úrkomumælir sýndi 22 mm úrkomu sl. viku, en nú er mælirinn tæmdur vikulega, þannig er auðvelt að bera saman vikurnar. Segja má að úrkoma hafi verið milli 15-20 mm flestar vikur frá því snemma í vor og hitinn hefur sjaldan farið mikið yfir 12°C. Trén eru varla farin að bæta miklu við hæðina ennþá, aspir komnar með 20-30 cm. Flest tré ansi veðurbarin eftir stanslausar lægðir sem runnið hafa framhjá undanfarnar vikur.
  Í dag gróðursettum við 13 stafafurur, 2 skógarfurur, 2 klukkutoppa og 3 reynitré sem gætu verið skrautreynir. Reynitrén fóru í svæðið milli vegar og akursins þar sem við byrjuðum að gróðursetja í fyrra, hin í svæðið ofan við grenilundinn og innan um áður gróðursett tré.  Við tókum upp 3 álmtré sem tórðu við illan leik á því svæði,  hjá víði og öspum í heimagarðinum þar sem fyrst var gróðursett. Þær setti ég í fötur og gaf góðan áburð.
 Hænsaræktin gengur ekki nógu vel. Bianca lá dauð inni í kofanum einn morguninn og í dag vantaði aðra svörtu hænuna í dag þegar við fórum heim. Við vorum að vona að hún kæmi aftur og fórum aftur eftir kvöldmat, en hana var hvergi að sjá, allar hinar voru komnar í ró.

No comments:

Post a Comment