Katla Björt var hjá okkur í vinnu sunnudag og mánudag og við fylltum 4 beð af hnúðkáli, pínulítið af hvítkáli og brokkolí fór í eitt hornið. Nú eigum við eftir að breiða yfir.
Akurinn er ennþá blautur, það þornar lítið í svona veðri. Það voru eftir nokkrar kartöflur frá Sauðlauksdal með stuttum spírum, þær fóru niður í beð við endann á kirsuberjatrjánum, sem reyndar virðast vera dauð, allavega þessi tvö sem ég keypti í fyrra og setti ekki niður fyrr en í vor.
No comments:
Post a Comment