Annasöm vika að baki. Afmælisveisla Halldórs var haldin laugardaginn 22. júní í blíðskaparveðri, sennilega besti dagurinn það sem af er sumri. Við fengum marga góða gesti í Hafnargerði, Steinar og Anna komu í fyrsta sinn, þá komu Edda og Hinrik og Valdi og fjölskylda. Edda, Hinrik, Steinar og Anna gengu með okkur um stórt svæði og voru mjög áhugasöm um ræktunina. Þau þáðu nokkrar plöntur, ask, geislasóp, villijarðarber og rifs. Allur gróður sýndi sínar bestu hliðar og þetta var mjög gaman. Matarveisla var svo í Austurholti og stór hluti veislugesta sat allan tímann úti á palli í blíðunni.
![]() |
| Steinar og Edda við hlyninn. |
![]() |
| Halldór, Anna, Edda og Hinrik skoða útsýnið, aspirnar í baksýn. |
Á sunnudaginn byrjuðum við að sauma dúk á beðin. Að lokum fórum við með hann heim og ég kláraði saumaskapinn á stofugólfinu. Dúkurinn komst loksins á mánudaginn 24. júní. Það er um 20 dögum seinna en í fyrra, þá settum við dúk yfir sáningar 27. maí og yfir fyrsta hnúðkálið 4. júní.
Hnúðkálið í ár er lítið og veiklulegt og svolítið fjólublátt á litinn, það hefur fengið áfall í vorfrostunum. Okkur fannst við geta séð að sumar plöntur væru að fara af stað, nú er ekkert hægt að gera nema bíða og vona.
Við settum ekki seytlslöngur undir dúkinn, það hefur ekki komið þurr vika og jarðvegurinn er mjög rakur svo ef til vill þarf ekki á því að halda í sumar. Annars verðum við að taka dúkinn af og koma slöngunum fyrir. Trjávöxtur er að fara af stað, það er reyndar mjög mikill maðkur á birkinu, ég vona samt að það sleppi óskaddað og vaxi eitthvað í sumar. Hlynurinn sýnir ótrúlegan vöxt, en hrossakastanían er rétt að byrja að laufgast, og byrjaði ekki að laufgast fyrr en netið var komið á girðinguna norðanmegin, en það var klárað fimmtudaginn 20. júní.
Rauðrófurnar eru líka stutt komnar og við tókum um það bil 100 bestu og settum í 2 ker og breiddum akryl yfir.
Í dag tókum við græðlinga af jörvavíði frá því í vor, yrkið 'Katla' og gróðursettum 30 stykki efst í heimagarðinn. Þar gróðursettum við nokkur birki fyrir nokkrum árum ásamt brekkuvíði og elri, þetta er allt að koma til. Líka aspir, við höfum sett niður slatta á hverju ári. Við settum svo 35 af sama jörvavíði norðan við afleggjarann, nálægt hliðinu. Þar settum við jörvavíði sl. 2 ár og sá er að koma til, virðist standa sig vel þarna í sandi á bersvæði.
| Jörvavíðirinn, nýgróðursettur. |
| Felumynd af lerki á sama svæði. |


No comments:
Post a Comment