Hiti og sólskin. 15°C en hvessi þegar leið á daginn, áfram hlýtt.
Garðyrkjufélagið kom í heimsókn til Sædísar f.h. og ég hjálpaði aðeins til þar. Þar hitti ég Helgu, fyrrum vinnufélaga Halldórs og hún kom síðdegis í heimsókn í Hafnargerði.
Í dag gat Halldór plægt efsta hluta akursins, hann ætlar að plægja aftur á morgun og svo á að setja niður rest af hnúðkáli og rauðrófum í 2 beð, setjum samt nokkrar góðar plöntur í ker og frauðplastbakka til að hafa einhverja uppskeru trygga.
Ég pottaði birki sem við ætlum að setja niður í melinn neðan við þjóðveginn næsta vor. Þetta eru heilmargar plöntur og eiga örugglega eftir að spjara sig.
Uppfærði talningar í dag, heildartalan 1115.
No comments:
Post a Comment