Saturday, August 3, 2013

Laugardagur 3. ágúst 2013

Hvassviðri í dag, en þurrt og hlýtt. Í gær var mikil hitamolla og logn. Þá tættum við þann hluta akursins sem ekkert var sett niður í, efsta hlutann og þann hluta neðst þar sem ekki eru kartöflur og trjáplöntur. Þetta gekk ljómandi vel, tætarinn tætti upp gras og illgresi og nú er allt orðið hreint og fínt. Ég hreinsaði líka illgresi úr kartöflubeði við efstu skjólgirðinguna.
 Á fimmtudaginn var hávaðarok og þá kom saumspretta á akryldúkinn. Ég náði að festa hann til bráðabirgða með meiri neti, spýtum og steinum. Næsta verkefni er að taka dúkinn af þegar lygnt er og hreinsa illgresið undan og gera við dúkinn.

No comments:

Post a Comment