Hífandi rok síðdegis, ágætt veður framan af degi. Í gær var logn síðdegis og við nýttum daginn til að taka akryldúkinn af og hreinsa illgresi og arfa undan honum. Það var ekki vanþörf á því, gífurlegt magn af krossfífli hafði búið um sig undir dúknum og eins var arfinn kominn í góðan vöxt. Við ókum burtu mörgum hjólbörum af rusli. Sumt var urðað úti í mýri, annað bíður í ruslapoka.
Við tókum neðri 3 beðin nokkuð vel, en fórum hratt yfir sögu í þeim efri, við þurfum að taka dúkinn af þeim aftur fljótlega og hreinsa betur. Hnúðkálið er að vaxa en það vantar held ég mánuð í viðbót til þess að þau verði tilbúin.
No comments:
Post a Comment