Í gær fórum við í heilmikinn leiðangur með trjáræktarklúbbnum, byrjað var í Reykholti, þá farið í Jarðlengju á Mýrum og endað hjá okkur. Það rigndi talsvert allan daginn, skárst var veðrið þó í Reykholti, en þegar við komum í Hafnargerði var rigningin nánast samfelld. Við gengum samt hring með 9 manns og sýndum helstu afrek. Leysti gesti út með gjöfum, gaf villijarðarber, klukkutopp, körfuvíði og logalauf. Skipti á skógarfuru og meyjarós.
No comments:
Post a Comment