Hvasst í dag, þó ekki eins og síðustu 2 daga, en það var norðanrok, allt að 30 m og hitinn rétt um 11°C. Úrkoma síðastliðna viku var tæpir 5mm, það hefur þurft að vökva potta í körmum, ennþá er nógur raki í kerjunum, en kartöflugrösin þar hafa farið illa. Grösin úti á akri standa sig betur, enda miklu lægri.
Það hefur ekki verið veður til að framkvæma mikið, við höfum aðeins reynt að snyrta karmasvæðið, en þar er allt að hverfa í grasi, líka í ruðningnum.
No comments:
Post a Comment